![]() |
Óráðherra Pete: Wait a minute. Who elected you leader of this outfit? Ulysses: Well Pete, I figured it should be the one with the capacity for abstract thought. But if that ain't the consensus view, then hell, let's put it to a vote. Svo hljóðar samræðubrot úr kvikmyndinni O Brother Where Art Thou? eftir Coen bræður. Myndin er byggð á Ódysseifskviðu Hómers. En ég er bara að segja það svo ég hljómi ekki eins og ómenntaður lágstéttarlýður. En fylgjendur og fulltrúar Besta flokksins hafa verið sakaðir um slíkt á einhverri bloggsíðu. Heh. Blogg. Gotta love it. Allavega. Besti flokkurinn er margt, en ómenntaður er hann varla. Í röðum flokksins er einungis að finna gáfað fólk. Kímnigáfað fólk. Að hafa kímnigáfu er að hafa ímyndunarafl. Afl sem hefur ekki verið neitt sérstaklega áberandi í borgarstjórn hingað til. Ekki mikið af abstrakt hugmyndum þar. Þar horfir fólk ekki á The Wire. Bara CSI: Miami. Þessvegna er Jón Gnarr kjörinn leiðtogi. Hann er okkar Ódysseifur og grín hans er Trójuhesturinn. Settur saman úr skrítlum og skrípalátum, en er í raun fullur af snilld. Heyrðu þarna byrjaði ég aftur að tala um Ódysseif. Vá hvað ég er menntaður. Hulli. |
