There are no translations available.
Við sýnum kjósendum virðingu og kærleika. Þá tala þeir við aðra og segja þeim frá Besta Flokknum og þeir verða líka kjósendur og tala við aðra um hvað Besti Flokkurinn sé kærleiksríkur flokkur og hvað allir séu glaðir sem kjósa Besta Flokkinn. Við erum eini flokkurinn á Íslandi sem er með kærleika sem eitt af sínum gildu. Það er vegna þess að kærleikurinn er svo mikilvægur. Svo er svo miklu auðveldara að plata fólk ef það heldur að manni finnist vænt um það. Þá treystir það manni betur.





